Fara beint í efni
Skógálfar
ÍslenskaEnglish
Hafa samband
Hafa samband

Ásmundur Skeggjason · Eigandias@hofdi.is895 3000

ÍslenskaEnglish
Gróðursetningarmaður fagnar á heiðinni

Vottuð kolefnisbinding með skógrækt

Náttúrunnar lausn á kolefnislosunum

Skoða í Carbon Registry

Vottað og skráð Skógarkolefni, Enviance, International Carbon Registry

Þessi skógur er ekki loforð. Hann er þegar kominn í jörðina.

1.041.852

tré gróðursett

Gróðursett eftir árum
2022
414.132
2023
196.829
2024–2025
430.891

Opinber talning haustið 2023 að viðbættum 430.891 plöntum í Álfadal og Álfheimum samkvæmt vottunarskýrslu verkefnisins, íbætur meðtaldar. Gróðursetningu þar lauk 31. maí 2025.

Heimildir: Opinber talning, haust 2023 · Vottunarskýrsla Álfadals/Álfheima, 2026

Gróðursett á okkar eigin landi.

Skógálfar eiga allt landið sem trén standa á, sunnan við Laugarvatn.

Laugarvatn 9 kmÞingvellir 24 kmReykjavík 60 km

Vegalengdir í beinni loftlínuOpna í korti

Vottun þriðja aðila

Staðfest af öðrum, ekki af okkur sjálfum

Við ræktum skóginn. Aðrir setja reglurnar, taka verkið út og halda skrá yfir einingarnar. Öll þrjú verkefnin okkar eru vottuð samkvæmt Skógarkolefni.

  1. 01Setur reglurnar

    Skógarkolefni

    Staðall Lands og skógar fyrir kolefnisbindingu með nýskógrækt, sá eini sinnar tegundar á Íslandi.

    Meðal krafna: landið hafi verið skóglaust í minnst 25 ár og 20% eininga séu sett til hliðar sem trygging.

    skogarkolefni.is
  2. 02Tekur verkið út

    Enviance

    Utanaðkomandi vottunarstofa, faggilt samkvæmt ISO 14065, tók Álfabrekku út árið 2024 og Álfadal/Álfheima árið 2026 og gaf út skýrslu um hvort verkefni.

    Skýrslan um Álfabrekku byggir á vettvangsskoðun 15. júní 2023 og skýrslan um Álfadal/Álfheima á vettvangsskoðun 9. febrúar 2026.

  3. 03Heldur skrána

    International Carbon Registry

    Öll þrjú verkefnin eru skráð þar, Álfabrekka sem nr. 57 frá 9. febrúar 2024.

    Skráin gefur einingarnar út í opinni færsluskrá, á Polygon-bálkakeðjunni, svo hver sem er getur rakið hvenær þær eru gefnar út, skipta um hendur og eru afskráðar, það er nýttar til kolefnisjöfnunar.

    Einingar í bið má framselja, en ekki afskrá fyrr en þær hafa verið sannprófaðar.

    Álfabrekka í opnu færsluskránni
    Skoðið sjálf í skránni

    Heimild: skjölun Carbon Registry

Skjöl

Allt uppi á borðum

Ræktunaráætlanir, kolefnisspár og vottunarskýrslur verkefnanna eru birtar hér í heild sinni, ásamt kortum og lóðablöðum. Lestu heimildirnar að baki tölunum.

Verkefnin okkar

Þrjú verkefni, fjórar spildur

Þrjú vottuð verkefni á fjórum samliggjandi spildum af heiðarlandi í Grímsnesi, teiknuð eftir mældum landamerkjum. Álfadalur og Álfheimar eru skráð saman sem eitt verkefni.

  • Verkefni Skógálfa
  • Ekki kolefnisverkefni Skógálfa

Álfabrekka

52.120 t CO₂e

Kolefnisspá, 50 ár · Staðfest spá

Stærð
100 ha97 ha gróðursettir
Gróðursett
252.000 plöntur2022 · talning haust 2023
Skráning
ICR 57 Skógarkolefni FCC057

Álfabrekka: 140 af 589 knattspyrnuvöllum

Hver reitur er einn knattspyrnuvöllur (105 × 68 m) af landi verkefnanna þriggja.

Heimildir: Lokaspá 2023 · Talning haust 2023 · Verkefnislýsing (PDD) · Landamerkjakort, des. 2023 · Landnr. 233248

Álfaskeið

69.257 t CO₂e

Kolefnisspá, 50 ár · Lokaspá 2023

Stærð
141,5 ha130 ha í spánni
Gróðursett
358.961 plöntur2022–2023 · talning haust 2023
Skráning
ICR 127 Vottunaraðili: Enviance

Álfaskeið: 198 af 589 knattspyrnuvöllum

Hver reitur er einn knattspyrnuvöllur (105 × 68 m) af landi verkefnanna þriggja.

Heimildir: Lokaspá 2023 · Talning haust 2023 · Landamerkjakort, des. 2023 · Landnr. 233749

Álfadalur/Álfheimar

65.279 t CO₂e

Kolefnisspá, 50 ár · Staðfest spá

Stærð
179,4 ha155 ha gróðursettir
Gróðursett
430.891 plönturLokið í maí 2025 · íbætur meðtaldar
Skráning
ICR 413 Skógarkolefni FCC413

Álfadalur/Álfheimar: 251 af 589 knattspyrnuvöllum

Hver reitur er einn knattspyrnuvöllur (105 × 68 m) af landi verkefnanna þriggja.

Heimildir: Vottunarskýrsla 2026 · Verkefnislýsing (PDD) · Tilkynning um framkvæmd · Landamerkjakort, des. 2023 · Landnr. 236324, 236615

Í samhengi

3.733186.656t CO₂e

Eitt meðalár þessara spáa: 186.656 ÷ 50Kolefnisspá allra verkefnanna þriggja, hvers yfir sín 50 ár

  • ÁlfabrekkaStaðfest spá1.04252.120 t
  • ÁlfaskeiðLokaspá 20231.38569.257 t
  • Álfadalur/ÁlfheimarStaðfest spá1.30665.279 t

Hversu mikið er það í raun?

Fáir hafa tilfinningu fyrir svona stórum tölum. Hér eru 50 ára spár verkefnanna þriggja bornar saman við hluti sem við þekkjum, sem eitt meðalár eða öll 50 árin.

Sem lofttegund fyllti eitt ár af því tening sem er 124 m á hvern kant, hærri en HallgrímskirkjaSem lofttegund fyllti það tening sem er 455 m á hvern kant, hærri en Empire State Building

CO₂ við 0 °C og 1 loftþyngd vegur 1,977 kg/m³. 50 ár: 94.400.000 m³, teningur með 455 m kant. Eitt ár: 1.888.000 m³, 124 m kantur. Hallgrímskirkja er 74,5 m á hæð, Empire State Building 443 m með mastri.

Jafnmikið og um 12.000 farþegar losa á flugi til Kaupmannahafnar og heim afturJafnmikið og um 620.000 farþegar losa á flugi til Kaupmannahafnar og heim aftur

Hver lína er 4.000 farþegar

Keflavík–Kaupmannahöfn og til baka á almennu farrými: 0,2985 t CO₂ á farþega, 2 × 2.142 km (aðeins CO₂). 186.656 ÷ 0,2985 ≈ 625.313; 3.733,1 ÷ 0,2985 ≈ 12.506. Námundað niður.

Bindingin vex með skóginum og nær hámarki árið 2053

Spáð binding á ári, öll þrjú verkefnin, t CO₂e 199 t árið 2025, mest 6.230 t árið 2053 og 1.071 t árið 2074.
  • Álfabrekka, talið frá 2027
  • Álfaskeið, talið frá 2028
  • Álfadalur/Álfheimar, talið frá 2025

Álfabrekka og Álfaskeið sleppa fyrstu fimm árunum af varúð. Spá Álfadals/Álfheima telur þau með.

Árstölur Álfabrekku og Álfaskeiðs eru úr lokaspám þeirra (2023, bls. 8–9). Vottunarskýrsla Álfadals/Álfheima gefur sjö tímabil en ekki ár (bls. 23–24); hverju tímabili er skipt jafnt á ár þess, frá 2025. Árin leggjast saman í 52.122 · 69.259 · 65.279 t; heimildirnar námunda hvert ár.

Eftir 20% varasjóð nýtast um 149.000 t spánna þriggja til kolefnisjöfnunar. Afganginum er haldið eftir þar til hvert verkefni lýkur, 2071–2074.

Heimildir: Lokaspá Álfabrekku, 2023 · Lokaspá Álfaskeiðs, 2023 · Vottunarskýrsla Álfadals/Álfheima, 2026 · NIST, eðlismassi CO₂ · Vísindavefurinn · Empire State Building · Kolefnisreiknivél ICAO, 2026 . Sótt 28. sept. 2026.

Hvers vegna þetta skiptir máli

Ísland, þá og nú

Við landnám, fyrir um 1.150 árum, huldu birkiskógar og kjarr stóran hluta landsins. Beit, skógarhögg og kolagerð eyddu þeim að mestu og í dag er Ísland minnst skógi vaxna land Norðurlandanna.

Skógur með trjám sem ná eða geta náð 5 m hæð, hlutfall af flatarmáli lands, 2023
  • Finnland73,7%
  • Svíþjóð68,7%
  • Noregur33,5%
  • Danmörk15,8%
  • Ísland0,53%
  • Ísland við landnámBirkiskógur og kjarr, sögulegt mat25–40%

Heimildir: Alþjóðabankinn, gögn FAO, 2023 · Skógræktin, saga skóga á Íslandi

Brosandi gróðursetningarkona með bakka af plöntum

Um okkur

Við viljum að það sem við gerum í dag bæti umhverfið til framtíðar. Þess vegna gróðursetjum við tré.

Skógálfar hafa fjárfest í landi í Grímsnes- og Grafningshreppi til að rækta skóg til kolefnisbindingar. Verkefnin skila umhverfislegum, efnahagslegum og samfélagslegum ávinningi og leggja baráttunni í loftslagsmálum lið.

Fjölnytjaskógur: alþjóðlega vottuð kolefnisbinding, jarðvegsvernd, útivist, timburframleiðsla og önnur vistkerfisþjónusta.

Hafa samband

Sjáðu skóginn með eigin augum

Skógurinn er ekki áningarstaður við veginn, heldur eru heimsóknir skipulagðar fyrir fram. Öll sem hafa áhuga eða fyrirspurn eru velkomin: sendu okkur bara beiðni.

Óska eftir heimsóknLeiðarlýsing 

Ásmundur SkeggjasonEigandiSkipuleggur heimsóknir og svarar fyrirspurnumas@hofdi.is895 3000

Uppfærslur

Nýjustu fréttir

Fréttir af skóginum, vottuninni og kolefnismarkaðnum.

  1. Fyrsta alþjóðlega vottaða skógarkolefnisverkefnið

    Það er okkur sönn ánægja að tilkynna fyrsta alþjóðlega vottaða skógarkolefnisverkefnið okkar og það fyrsta á Íslandi.

    Dráttarvél á heiðinni undir skýjuðum himni
  2. Kolefnismarkaðir

    Skýrsla starfshóps á vegum stjórnvalda um kolefnismarkaði kom nýlega út. Hér eru nokkur atriði úr skýrslunni sem við bendum á.

    Kolefnismarkaðir – áskoranir og tækifæri í íslensku samhengi
  3. Verstu mistök Íslandssögunnar – Gylfi Magnússon

    Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, skrifar um verstu mistök Íslandssögunnar í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

    Grein Gylfa Magnússonar, Verstu mistök Íslandssögunnar, á Heimildinni

Fleiri fréttir

Kolefniseiningar

Taktu þátt í að rækta íslenskan skóg.

Kolefniseiningarnar okkar koma úr skógi á okkar eigin landi á Suðurlandi, vottaðar samkvæmt Skógarkolefni og skráðar í International Carbon Registry.

Spyrjast fyrir um einingarVerkefnin í Carbon Registry