Fyrsta alþjóðlega vottaða skógarkolefnisverkefnið

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna fyrsta alþjóðlega vottaða skógarkolefnisverkefnið okkar og það fyrsta á Íslandi.
Við viljum koma á framfæri miklu þakklæti til starfsfólks hjá Landi og skógi; þessi alþjóðlega vottun er viðurkenning á því frábæra starfi sem þar hefur verið unnið og á Skógarkolefnisstaðlinum. Að okkar mati er framtíðin björt og við höfum áfram sem hingað til óbilandi trú á innlendri skógrækt. Við viljum líka þakka þann mikla almenna áhuga sem verkefnunum okkar hefur verið sýndur.



